Lykilleikmaður fjórðu umferðar Bónus deildar karla var leikmaður Vals Kári Jónsson.
Í sigurleik Vals í tvíframlengdum spennutrylli í Þorlákshöfn var Kári besti leikmaður vallarins. Á rúmum 42 mínútum spiluðum skilaði hann 31 stigi, 4 fráköstum, 10 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hann einnig nokkuð skilvirkur, með 7 af 12 fyrir utan þriggja stiga línuna, 5 fiskaðar villur og 33 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn Bónus deild karla
- umferð – Jordan Semple / Grindavík
- umferð – Khalil Shabazz / Grindavík
- umferð – Brandon Averette / Njarðvík
- umferð – Kári Jónsson / Valur



