Lykilleikmaður einvígis KR og Þór Ak í átta liða úrslitum Dominos deildar karla var valinn Jón Arnór Stefánsson leikmaður KR. Hann sýndi gríðarlega stöðuga frammistöðu í öllum þremur leikjunum og reyndist liðinu sérlega mikilvægur á stórum augnablikum. Þrátt fyrir að ekki hafi verið mikið um háspennu á lokamínútum leikjanna þá gat Jón með áræðni sinni og gæðum alltaf búið til eitthvað fyrir liðið eða sjálfan sig. Auk þess var varnarvinna Jóns óaðfinnanleg í einvíginu og mun sá eiginleiki hans nýtast liðinu vel í einvíginu gegn Keflavík.
Besti leikur í átta liða úrslitum: Leikur 1 í DHL-Höllinni. Jón Arnór var með 18 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar á 28 mínútum. Auk þess hitti hann átta af þrettán skotum sínum fyrir innan þriggja stiga línuna í leiknum.
Viðtal við Jón Arnór eftir sigur í leik þrjú.




