spot_img
HomeFréttirLykill: Hlynur Bæringsson

Lykill: Hlynur Bæringsson

 

Lykilleikmaður 11. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Stjörnunnar, Hlynur Bæringsson. Í góðum sigri hans manna á meisturum KR skoraði hann 31 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Einstaklega skilvirkur sóknarlega í leiknum þar sem að hann setti niður öll sex vítaskot sín og þær þrjár þriggja stiga tilraunir sem hann reyndi í leiknum. Þetta er í annað skiptið í vetur sem að Hlynur er lykilmaður umferðarinnar.

 

Aðrir tilnefndir voru leikmaður Keflavíkur, Amin Stevens, fyrir frammistöðu sína gegn ÍR og leikmaður Þórs, Tobin Carberry, fyrir frammistöðu sína gegn Njarðvík.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -