Lykilleikmaður 5. umferðar Bónus deildar karla var leikmaður Álftaness Haukur Helgi Briem Pálsson.
Í nokkuð sterkum eins stig sigri gegn Njarðvík í Kaldalónshöllinni var Haukur Helgi besti leikmaður vallarins. Á tæpum 34 mínútum spiluðum skilaði hann 23 stigum, 5 fráköstum, 8 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hann gífurlega skilvirkur í leiknum, með 80% heildarskotnýtingu, enga tapaða bolta, 6 fiskaðar villur og 34 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn Bónus deild karla
- umferð – Jordan Semple / Grindavík
- umferð – Khalil Shabazz / Grindavík
- umferð – Brandon Averette / Njarðvík
- umferð – Kári Jónsson / Valur
- umferð – Haukur Helgi Briem Pálsson / Álftanes



