spot_img

Lykill: Hansel Atencia

Lykilleikmaður 11. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Þórs Akureyri, Hansel Atencia.

Í virkilega sterkum sigurleik hans manna gegn Íslandsmeisturum KR var Atencia besti leikmaður vallarins. Á tæpum 32 mínútum spiluðum skilaði hann 31 stigi, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum. Þá var hann sex af sex af gjafalínunni, en skilvirkni hans í leiknum var til fyrirmyndar, var með 30 framlagsstig.

  1. umferð – Dominykas Milka (Keflavík)
  2. umferð – Viktor Lee Moses (Fjölnir)
  3. umferð – Georgi Boyanov (ÍR)
  4. umferð – Ólafur Ólafsson (Grindavík)
  5. umferð – Jamal K Olasawere (Grindavík)
  6. umferð – Ægir Þór Steinarsson (Stjarnan)
  7. umferð – Marko Bakovic (Þór)
  8. umferð – Nikolas Tomsick (Stjarnan)
  9. umferð – Hörður Axel Vilhjálmsson (Keflavík)
  10. umferð – Halldór Garðar Hermannsson (Þór)
  11. umferð – Hansel Atencia (Þór Akureyri)
  12. umferð – Pavel Ermolinskij (Valur)
  13. umferð – Urald King (Stjarnan)
  14. umferð – Khalil Ullah Ahmad (Keflavík)
  15. umferð – Austin Magnus Bracey (Valur)
Fréttir
- Auglýsing -