Lykilleikmaður 10. umferðar Dominos deildar kvenna, í fjórða skiptið í vetur, var leikmaður Njarðvíkur, Carmen Tyson-Thomas. Eftir að hafa verið frá í stuttan tíma átti Carmen hreint magnaðan leik á móti Stjörnunni. Skoraði 50 stig, tók 18 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 3 boltum í leiknum, en hún spilaði allar 40 mínúturnar.
Önnur tilnefnd var leikmaður Vals, Mia Loyd, en í góðum sigri á Snæfelli setti hún meðal annars met þetta tímabilið með 25 fráköstum.
Lykilleikmaður 10. umferðar? #korfubolti
Carmen Tyson-Thomas – Njarðvík gegn Stjörnunni
Mia Loyd – Valur gegn Snæfell— Karfan.is (@Karfan_is) November 30, 2016




