spot_img
HomeFréttirLykill: Carmen Tyson-Thomas

Lykill: Carmen Tyson-Thomas

 

Lykilleikmaður 24. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Njarðvíkur, Carmen Tyson-Thomas. Í góðum sigri Njarðvíkurkvenna á Stjörnunni skoraði Carmen 47 stig, tók 25 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Einnig fiskaði hún heilar 13 villur á liðsmenn andstæðingana. Þetta er í 7. skiptið í vetur sem Carmen er leikmaður umferðarinnar.

 

Aðrar tilnefndar voru leikmaður Skallagríms, Tavelyn Tillman, fyrir frammistöðu sína gegn Grindavík, leikmaður Keflavíkur, Ariana Moorer, fyrir frammistöðu sína gegn Haukum og leikmaður Snæfells, Aaryn Ellenberg-Wiley, fyrir frammistöðu sína gegn Val.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -