Lykill: Brittany Dinkins

Lykilleikmaður 22. umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Njarðvíkur Brittany Dinkins.

Brittany Dinkins fór hreinlega á kostum í öruggum sigri Njarðvíkur gegn Val og sýndi af hverju hún er einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Hún skilaði stórkostlegri tölfræði nánast hvar sem litið er niður, en hún var nálægt því að ná glæsilegri þrennu með 38 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar. Skotnýtingin hennar var til fyrirmyndar þar sem hún hitti úr 57% skota sinna utan af velli (þar af 68% í tveggja stiga skotum) og nýtti öll fjögur vítaskotin sín. Auk þess að vera óstöðvandi í sókninni var hún hrikalega öflug í vörninni með 6 stolna bolta, sem skilaði henni heildarframlagi upp á heil 48 stig. Þá er rétt að nefna að Njarðvík vann leikinn með 29 stigum á þeim tæpu 34 mínútum sem hún spilaði, sem undirstrikar hversu mikilvæg hún var fyrir liðið í þessari lokaumferð Bónus deildarinnar.

Lykilleikmenn:

  1. umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
  2. umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
  3. umferð – Þóranna Kika Hodge Carr / Valur
  4. umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
  5. umferð – Shaiquel Mcgruder / Stjarnan
  6. umferð – Paulina Hersler / Njarðvík
  7. umferð – Diljá Ögn Lárusdóttir / Stjarnan
  8. umferð – Madison Sutton / Tindastóll
  9. umferð – Amandine Justine Toi / Haukar
  10. umferð – Danielle Rodriguez / Njarðvík
  11. umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
  12. umferð – Marta Hermida / Tindastóll
  13. umferð – Abby Beeman / Grindavík
  14. umferð – Abby Beeman / Grindavík
  15. umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
  16. umferð – Molly Kaiser / KR
  17. umferð – Alyssa Cerino / Valur
  18. umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / Keflavík
  19. umferð – Kylie Savannah / Ármann
  20. umferð – Jadakiss Guinn / Hamar-Þór
  21. umferð – Madison Sutton / Tindastóll
  22. umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
Fréttir
- Auglýsing -