Lykilleikmaður 26. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur, Brittanny Dinkins. Í góðum sigri liðsins á Skallagrím í Borgarnesi skoraði Dinkins 48 stig, tók 13 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og stal 2 boltum. Í heildina skilaði hún 54 framlagsstigum með frammistöðu sinni.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður Vals, Aalyah Whiteside, leikmaður Breiðabliks, Whitney Knight og leikmaður Stjörnunnar, Danielle Rodriguez.
Lykilleikmaður 26. umferðar Dominos deildar kvenna? #Korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 18, 2018



