Lykilleikmaður 17. umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Vals Alyssa Cerino.
Í nokkuð sterkum sigri Vals gegn Grindavík í HS orku höllinni var Alyssa besti leikmaður vallarins. Á rúmum 30 mínútum spiluðum skilaði hún 22 stigum, 10 fráköstum og 2 stoðsendingum. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum, með enga tapaða bolta, 3 fiskaðar villur, 72% heildarskotnýtingu, 6 af 9 fyrir utan þriggja stiga línuna og 31 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
- umferð – Þóranna Kika Hodge Carr / Valur
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Shaiquel Mcgruder / Stjarnan
- umferð – Paulina Hersler / Njarðvík
- umferð – Diljá Ögn Lárusdóttir / Stjarnan
- umferð – Madison Sutton / Tindastóll
- umferð – Amandine Justine Toi / Haukar
- umferð – Danielle Rodriguez / Njarðvík
- umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
- umferð – Marta Hermida / Tindastóll
- umferð – Abby Beeman / Grindavík
- umferð – Abby Beeman / Grindavík
- umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
- umferð – Molly Kaiser / KR
- umferð – Alyssa Cerino / Valur




