Stjarnan tryggði sér gríðarlega mikilvægan sigur á Njarðvík í sannkölluðum skotbardaga í kvöld, þar sem sóknartilþrifin voru í algjöru fyrirrúmi og lokatölur urðu 113–103.
Eftir leikinn er Stjarnan í 2. sæti deildarinnar með 24 stig á meðan Njarðvík er í 9. sætinu með 12 stig.
Karfan spjallaði við Inga Þór Steinþórsson aðstoðarþjálfara Stjörnunnar eftir leik í Garðabæ.




