HomeFréttirLucious Wagner í Hólminn

Lucious Wagner í Hólminn

14:00

{mosimage}

Wagner hlýðir á þjálfara sinn í Tékklandi 

Eins og kom fram á vefmiðlum um helgina hafa Snæfellingar ákveðið að fá erlendan leikmann til liðsins fyrir átökin sem eftir eru. Þeir hafa gert munnlegt samkomulag við Lucious Wagner sem er bandarískur leikstjórnandi sem hefur leikið víða um heim.  Að sögn Hlyns Bæringssonar annars þjálfara Snæfells á aðeins eftir að klára pappírsvinnu áður en kappinn kemur.

Wagner þessi lék með Hlyn og Sigurði í Hollandi á sínum tíma og þá var hann með stigahæstu mönnum í Finnlandi, tímabilið sem Logi Gunnarsson lék með ToPo. Hann hefur einnig leikið í Tékklandi og nú síðast í Líbanon þaðan sem hann kemur til Íslands.

Karfan.is heyrði í Hlyn Bæringssyni sem sagði þetta um kappann: „Lucious er aðallega leikstjórnandi, þó hann spilað sem tvistur í Tékklandi í fyrra. Traustur leikmaður sem ætti að nýtast okkur vel, hann er hávaxinn af leikstjórnanda að vera, og vonandi náum við að bæta vörnina enn frekar hjá okkur með honum. Hans hlutverk verður að stjórna spilinu en vera á sama tíma ógnandi, verður að finna þennan gullna meðalveg að skora sjálfur og finna okkur hina.“

„Þetta styrkir liðið óneitanlega en við gerum okkur alveg grein fyrir því að hann vinnur ekkert einn og sér. En vonandi hjálpar hann. Við erum núna í þessum pakka fyrir neðan toppliðin ásamt Keflavík, Njarðvík og Tindastól og stefnan er sett að færast nær toppliðunum og vera svo klárir í að gera eitthvað í úrslitakeppninni. Við hefðum vafalaust getað tekið séns og reynt að fá eitthverja hetju hingað en ástandið leyfir ekki að við séum að henda mönnum og fá nýja inn og við ákváðum því að fá bara gamlan félaga sem við vitum hvað getur og er topp náungi. Í stað þess að enda með eitthvern vitleysing sem enginn nennir að spila með né hafa samskipti við.“

Aðspurður um hvenær von væri á kappanum sagði Hlynur: „Allavega ekki fyrir leikinn gegn Skallagrím en vonandi fyrir Þórsleikinn. Annars ræðst þetta allt af því hvernig gengur að koma pappírunum í gegnum kerfið.“

[email protected]

Mynd: www.uskpraha.cz

Fréttir
- Auglýsing -