spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaLovísa áfram með Haukum

Lovísa áfram með Haukum

Lovísa Björt Henningsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Hauka og mun hún leika með liðinu næstu árin. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag. Lovísa skilaði 7 stigum, 4 fráköstum og vörðu skoti að meðaltali í leik fyrir Hauka á síðasta tímabili, en þar fór liðið alla leið í úrslitaeinvígið.

Tilkynning:

Lovísa Björt Henningsdóttir og körfuknattleiksdeild Hauka hafa komist að samkomulagi um að Lovísa spili með liðinu næstu árin. Lovísa var 6.8 stig, 4.2 fráköst og 1.2 varin skot að meðaltali í leik á síðustu leiktíð og var gríðarlega öflug í vörn Haukanna. Haukum hlakkar til að halda áfram samstarfinu við Lovísu. Áfram Haukar

Fréttir
- Auglýsing -