HomeFréttirLouisville og Ohio State komin í undanúrslit NCAA

Louisville og Ohio State komin í undanúrslit NCAA

Fjörið heldur áfram, marsfárið í bandaríska háskólaboltanum er nú í algleymingi og þegar hafa lið úr ,,austrinu" og úr ,,vestrinu" tryggt sér sæti í undanúrslitum. Í austrinu var það Ohio State (#2) sem sló út Syracuse (#1) í svæðisúrslitum. Í vestrinum var það Louisville skólinn (#4) sem sló út Flórída (7).
Ohio State 77-70 Syracuse
Jared Sullinger gerði 19 stig og tók 7 fráköst í liði Ohio State en Brandon Triche var með 15 stig hjá Syracuse. Ohio mætir svo sigurvegara úr leik North Carolina og Kansas.
 
Louisville 72-68 Florida
Russ Smith gerði 19 stig í liði Louisville og tók 5 fráköst. Hjá Syracues voru þeir Erik Murphy og Bradley Beal báðir með 14 stig. Hér mættust á þjálfarastól lærimeistarinn gamli Rick Pitino og fyrrum aðstoðarmaður hans Billy Donovan. Rick með Louisville en Billy með Flórída-skólann. Billy sagði eftir leikinn að ef hann þyfti að tapa og hann fengi að velja gegn hverjum þá vissulega yrði það gegn gamla læriföðurnum Pitino. Louisville mætir svo sigurvegaranum úr viðureign Kentucky og Baylor en Kentucky er einmitt skólinn þar sem Pitino og Donovan þjálfuðu saman hér í eina tíð.
 
Í kvöld í ,,miðvestrinu" leika til úrslita North Carolina og Kansas og í ,,suðrinu" mætast Kentucky og Baylor svo í nótt verður það endanlega ljóst hvernig undanúrslit NCAA keppninnar verða skipuð þetta árið.
 
www.ncaa.com
 
  
Fréttir
- Auglýsing -