Martin Hermannsson leikmaður Íslands var bærilega sáttur með mótið og sagði ef liðið hefði verið örlítið auðveldari væri liðið jafnvel á leið til Frakklands í 16 liða úrslit. Martin sagðist ætla að reyna að "stela" nokkrum dögum áður en hann heldur í skólann í Brooklyn. Martin mun líkast til taka við kyndlinum í þessu landsliði á næstu árum og við ræddum það lauslega við hann en hann sagðist hlakka til því það mun losna um fullt af skotum, en að sjálfsögðu var þetta allt í góðu tómi. Hann sagðist hinsvegar ekki sjá að þessir "gömlu" væru neitt að hætta, þeir ættu nóg eftir.



