22:31
{mosimage}
(Charleston Long)
Körfuknattleikslið Njarðvíkur í Iceland Express deild karla hefur sagt upp samningi sínum við Bandaríkjamanninn Charleston Long. Leit er hafin af eftirmanni Long í Ljónagryfjunni.
Charleston Long þótti ekki standa undir væntingum en hann lék fimm deildarleiki með Njarðvík og gerði í þeim 8,8 stig að meðaltali í leik.
Frá þessu er greint á www.vf.is



