Í Stykkishólm mættu Njarðvíkingar en þeir hafa tvívegis fagnað sigri í viðureignum liðanna í vetur. Annars vegar í Poweradebikarnum í Hólminum og hins vegar í fyrri leik liðanna í Iceland Express deildinni sem fór 89-87 fyrir Njarðvík. Sviptingar innan liðanna fyrir þennan leik voru að Ryan Amoroso hvíldi vegna meiðsla og Gunnlaugur Smárason var kominn í aðstoðarþjálfarastöðuna hjá Snæfelli. Hjá Njarðvíkingum var Guðmundur Jónsson frá vegna meiðsla en hann fann sig vel í Hólminum í síðustu heimsókn. Þjálfararnir Friðrik Ragnarsson og Einar Árni Jóhannsson að leita eftir sínum fyrsta sigri með Njarðvík og snúa við gengi þessa sigursæla liðs.
Byrjunarliðin.
Snæfell: Pálmi, Nonni, Emil, Sveinn, Sean.
Njarðvík: Chris, Rúnar, Jóhann, Friðrik, Ólafur.
Fyrstu stig leiksins voru treg til en Emil Þór kom stigatöflunni í gang þegar 2:05 voru búnar af leiknum og Snæfell komst í 5-0 með þrist frá Pálma. Njarðvík sótti þó á strax en Snæfell komst fljótt í 10 stiga forystu 20-10 með hröðum sóknum þar sem Emil fór mikinn og Nonni Mæju sá um fráköstin. Friðrik og Chris Smith sáu mest um að skora fyrir Njarðvík. Staðan 25-18 eftir fyrsta hluta.
Njarðvík spýttu heldur betur í lófana og jöfnuðu 28-28 og svo yfir 33-34 strax í öðrum hluta en Chris Smith fór mikinn fyrir Njarðvík í teignum og Snæfell voru að hnoðast í sínum sóknum og missa boltann. Leikurinn varð hnífjafn, harður og skemmtilegur en dómarar leiksins leyfðu nokkuð mikið í leiknum framan af. Staðan í hálfelik 47-44 fyrir Snæfell en mikil barátta einkenndi bæði lið hingað til.
Hjá Snæfelli var Pálmi Freyr kominn með 15 stig, Nonni 10 stig og 10 fráköst og Sean 9 stig. Í liði Njarðvíkur var Chris Smith kannski ekki allt í öllu en mjög margt í mörgu og var kominn með 22 stig og Friðrik Stefánsson 8 stig.
Snæfell leiddi áfram með nauma forystu í þriðja hluta í hörkuleik. Fleiri leikmenn í þeirra röðum voru að stíga upp en hjá Njarðvík var Friðrik helsti aflgjafinn. Munurinn fór í 1 stig 60-59 og svo komust Njarðvíkingar yfir 60-61 en þetta var gangur leiksins í þriðja hluta og staðan 62-63 fyrir Njarðvík.
Egill Jónasson kom inn fyrir Njarðvík og byrjaði með látum á fyrstu fjórum stigum fjórða leikhluta og staðan 62-67. Njarðvík komst svo í 64-72 með góðum þrist frá Jóhanni Ólafssyni og þegar Hjörtur Hrafn setti annan til neyddist Ingi Þór að til að taka leikhlé og stilla sína menn af. Jón Ólafur svaraði svo með tveimur þristum og ljóst að lokahlutinn var byrjaður með látum og staðan um miðjann hlutann 77-83 fyrir gestina grænu.
Þegar 2 mínútur voru eftir náði Snæfell að minnka muninn í 3 stig 86-89 og svo að jafna 89-89 með tveimur einu frá Sveini Arnari sem reif allt niður undir körfunni í lokin og var Snæfelli mikilvægur mjög. Eftir tvær glataðar sóknir Njarðvíkur og eina Snæfells náði Sean Burton að bruna upp völlinn alveg undir körfu þar sem hann lét boltann fjúka í hendur Pálma í horninu með tvistinn klárann 91-89 og stal hann svo boltanum í innkasti Njarðvíkur strax á eftir og fór á vítalínuna og setti annað í þegar 12 sekúndur voru eftir 92-89. Lárus Jónsson setti svo síðustu stigin fyrir Njarðvík og leikklukkan rann svo út með Sean Burton á boltanum og Snæfell náði 92-91 gríðalega mikilvægum sigri og komast aftur á toppinn.
Friðrik og Einar þurfa að bíða eftir sigri um sinn þó mikil batamerki hafi sést á Njarðvíkingum og þeir verið hársbreidd frá sigri og tapað þessu sorglega niður í lokin á meðan Snæfell sýndi karakter eftir tapið frá síðasta leik og komu til baka með Svein Arnar, Pálma og síðast en ekki síst Nonna Mæju sem setti niður rosalegar körfur og Hólmarar sögðu “loksins” eftir þennan nauma sigur.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson.
Heildarskor leikmanna.
Snæfell:
Jón Ólafur 32/13 frák. Pálmi Freyr 22/6 stoðs/3 stolnir. Sean Burton 14/4 frák/6 stoðs. Emil Þór 12. Sveinn Arnar 6/12 frák. Atli Rafn 6/5 frák. Aðrir leikmenn Snæfells skoruðu ekki.
Njarðvík:
Chris Smith 30/7 frák. Friðrik Stefánsson 14/7 frák. Hjörtur Hrafn 12 stig. Egill Jónasson 11 stig. Jóhann Árni 7/10 frák. Páll Kristins 6. Rúnar Ingi 4. Lárus Jónss 3/6 frák/7 stoðs. Kristján Rúnar og Óli Ragnar 2 hvor. Aðrir leikmenn Njarðvíkur skoruðu ekki.
Mynd/ Úr safni: Jón Ólafur Jónsson fór mikinn gegn Njarðvíkingum í kvöld.
Umfjöllun: Símon B. Hjaltalín




