Grindavík endaði deildina með stæl og kom í veg fyrir að Stjarnan tæki annað sætið af KR. Stjarnan endar því í 4 sæti deildarinnar þar sem bæði KR og Þór Þ. unnu sína leiki í kvöld.
Stigahæstu menn Grindvíkur voru Giordan Watson með 24 stig og 8 stoðsendingar, Sigurður Þorsteinsson með 12 stig og 7 fráköst og J’Nathan Bullock með 9 stig og 7 fráköst. Aðeins tveir leikmenn komust ekki á blað hjá Grindvíkingum í kvöld.
Í liði Stjörnunnar var Renato Lindmets atkvæðamestur með 24 stig og 9 fráköst en næstir voru Justin Shouse með 21 stig og 7 stoðsendingar og Keith Cothran með 14 stig og 5 fráköst.
ÍR 82-88 KR
KR sigldi fram úr ÍR í fjórða leikhluta og tryggði sér annað sætið í deildinni með 6 stiga sigir á ÍR í hellinum. KR hefur því heimavallaréttin í úrslitakeppninni þangað til það mætir Grindavík
Stigahæstur í liði KR í kvöld var Finnur Atli Magnússon með 24 stig og 11 fráköst en næstir voru Joshua Brown með 18 stig og 6 fráköst og Robert Ferguson með 17 stig og 11 fráköst.
Í liði ÍR var Robert Jarvis stigahæstur með 25 stig og 6 fráköst en næstir voru Rodney Alexander með 23 stig og 10 fráköst og Nemanja Sovic með 16 stig.
Tindastóll 81- 79 Njarðvík
Niðurstaðan í þessum leik hefur ekki áhrif á röðunina inní úrslitakeppnina þar sem Njarðvík hefði þurft meira en 7 stiga sigur á Tindastól til þess að fara upp fyrir þá í deildinni.
Stigahæstu í liði Tindastóls í kvöld var Maurice Miller með 31 stig 6 fráköst og 5 stoðsendingar en næstir voru Curtis Allen með 18 stig og 9 fráköst og Þröstur Leó Jóhannsson með 11 stig.
Í liði Njarðvíkur var Cameron Echols stigahæstur með 26 stig og 12 fráköst en næstir voru Elvar Friðriksson með 20 stig og Travis Holmes með 13 stig.
Fjölnir 98- 99 Keflavík
Framlengja þurfti leik Fjölnis og Keflavíkur en staðan var 86-86 eftir venjulegan leiktíma. Keflavík situr því sem fastast í 5. sæti deildarinnar þar sem önnur úrslit voru þeim ekki hagstæð.
Stigahæstur í liði Keflavíkur var Jerryd Cole með 37 stig og 19 fráköst en næstu menn voru Magnús Gunnarsson með 28 stig og Charles Parker með 14 stig.
Í liði Fjölnis var Arnþór Guðmundsson atkvæðamestur með 18 stig og 8 stoðsendingar en næstir voru unglingurinn Björgin Hafþór Ríkarðsson með 17 stig og Nathan Walkup með 16 stig og 12 fráköst.
Haukar 79-85 Þór Þorlákshöfn
Þór Þorlákshöfn tryggði sér með sigrinum í kvöld þriðja sætið í deildinni, jafnt KR að stigum en KR hafði betur í innbyrgðis viðureignum.
Stigahæsti maður Þórs í leiknum í kvöld var Darren Govens með myndarlega þrefalda tvennu, 26 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar. Næstu menn voru Darri Hilmarsson með 20 stig og 7 fráköst og Guðmundur Jónsson með 18 stig.
Í liði Hauka var Christopher Smith stigahæstur með 20 stig og 7 fráköst en næstir voru Joseph-Pauline með 16 stig, 5 fráköst og 7 stoðsendingar og Haukur Óskarsson með 12 stig.
Valur 68 – 80 Snæfell
Hvorugt liðana höfðu að neinu að keppa í kvöld þar sem Valur var fallið og Snæfell var öruggt í 6. sæti deildarinnar.
Stigahæstumenn Snæfells voru Ólafur Torfason með 15 stig og 10 fráköst en næstiru voru Marquis Hall með 14 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og Jón Ólafur Jónsson með 13 stig og 11 fráköst.
Í liði Vals var Marvin Jackson með 25 stig og 12 fráköst en næstir voru Hamid Dicko með 13 stig og 8 fráköst og Alexander Dungal með 7 stig.
Lokastaðan í deildinni er því :
|
1. |
19/3 |
38 |
|
|
2. |
15/7 |
30 |
|
|
3. |
15/7 |
30 |
|
|
4. |
14/8 |
28 |
|
|
5. |
13/8 |
26 |
|
|
6. |
13/9 |
26 |
|
|
7. |
11/11 |
22 |
|
|
8. |
9/13 |
18 |
|
|
9. |
8/14 |
16 |
|
|
10. |
8/13 |
16 |
|
|
11. |
6/16 |
12 |
|
|
12. |
0/22 |
0 |




