HomeFréttirLokaumferðin í danska boltanum í kvöld

Lokaumferðin í danska boltanum í kvöld

Lokaumferð Canaldigitalligaen, dönsku úrvalsdeildarinnar fer fram í kvöld. Íslendingaliðin þrjú eru öll að berjast um að ná sem hagstæðustu sæti í úrslitakeppninni.
 
 
 
Axel Kárason og félagar í Værløse heimsækja botnlið Falcon sem skipti um þjálfara á dögunum. Axel og félagar verða að vinna til að eiga möguleika á að halda fimmta sætinu í deildinni og mæta SISU í 8 liða
úrslitum. En Værløse er í baráttu við annað Íslendingalið, Horsens IC sem Sigurður Einarsson leikur með tekur á móti Næstved og sigri Horsens enda þeir í fjórða eða fimmta sæti, fer eftir því hvernig fer hjá SISU
sem er í heimsókn hjá Bakken Bears. Það er því mikil spenna hjá báðum liðum í kvöld.
 
Þriðja Íslendingaliðið, Åbyhøj, sem Arnar Guðjónsson þjálfar og Ólafur Sigurðsson og Guðni Valentínusson spila með tekur á móti Hørsholm í beinni útsendingu á DK4. Åbyhøj þarf á sigri að halda til að komast í úrslitakeppnina, eru með 16 stig eins og Aalborg sem tekur á móti Svendborg Rabbits í kvöld. Í Danmörku leika tvö neðstu liðin um að bjarga sér frá falli og komist Åbyhøj ekki í áttunda sætið mæta þeir
Falcon í einvígi um fallið þar sem þarf að vinna 3 leiki.
 
Hægt er að fylgjast með leikjunum á heimasíðu deildarinnar.
http://www.canaldigitalligaen.dk/ 

Mynd/ Sigurður Þór Einarsson í leik með Horsens IC

Fréttir
- Auglýsing -