Annað kvöld er lokaumferðin í sænsku úrvalsdeildinni, ljóst er hvaða lið munu taka þátt í úrslitakeppninni en Brynjar Þór Björnsson og félagar í Jamtland Basket eru fastir í 9. sæti deildarinnar og verða því ekki með. Hin Íslendingaliðin, Sundsvall, Solna og 08 Stockholm verða öll þrjú í úrslitakeppninni þetta tímabilið.
Lokaumferðin í sænsku úrvalsdeildinni
Þriðjudaginn 13. mars kl. 19:04 að sænskum tíma, 18.04 að íslenskum tíma
ecoÖrebro – Solna Vikings
Norrköping Dolphins – 08 Stockholm HR
LF Basket – Sundsvall Dragons
Södertalje Kings – Jamtland Basket
Uppsala Basket – Boras Basket
Mynd/ Eftir annað kvöld segir Brynjar Þór skilið við sænsku úrvalsdeildina í bili.



