07:00
{mosimage}
(Kvennalandsliðið mætir Dönum í dag á Norðurlandamótinu)
Tveir leikir fara fram í dag á lokakeppnisdegi Norðurlandamóts kvenna í Danmörku. Svíþjóð og Noregur mætast í fyrri leik dagsins en í þeim síðari mætast Ísland og heimamenn í Danmörku.
Íslenska liðið hefur tapað fyrstu þremur leikjum sinum á mótinu og freistar þess að landa sínum fyrsta sigri í dag. Leikur Svía og Norðmanna hefst kl. 11.15 en leikur Íslands og Danmerkur hefst kl. 13.30.




