Opna Norðurlandamóti U15 landsliða í Kisakallio í Finnlandi lýkur í dag, fimmtudaginn 6. ágúst, þar sem bæði íslensku liðin leika síðustu leiki sína á mótinu gegn Danmörku.
Íslenska stúlknaliðið hefur leikinn og mætir Dönum klukkan 09:30 að íslenskum tíma (12:30 að staðartíma). Stelpurnar eru með einn sigur og eitt tap eftir fyrstu tvo leikina og stefna á að ljúka mótinu af krafti.
Drengjaliðið fer svo á völlinn klukkan 11:45 að íslenskum tíma (14:45 að staðartíma) og mætir einnig liði Danmerkur. Strákarnir leita að fyrsta sigri sínum á mótinu.
Leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á KorisTV (basket.fi) þar sem hægt er að fylgjast með gangi mála og tölfræði í rauntíma.




