Selfoss hefur samið við unga leikmanninn Loga Smárason um að leika með meistaraflokki karla fyrir tímabilið 2026–2027.
Logi kemur frá Laugarvatni þar sem hann hefur æft og leikið allan sinn feril. Hann var partur af U18 ára landsliði Íslands á Norðurlandamótinu í sumar. Hjá Selfyssingum ríkir mikil ánægja með að fá þennan kraftmikla og efnilega leikmann í sínar raðir til að taka næstu skref á ferlinum.




