HomeFréttirLogi og Helgi töpuðu báðir á útivelli

Logi og Helgi töpuðu báðir á útivelli

 
Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gær þar sem Solna Vikings og Uppsala Basket máttu bæði sjá ósigra á útivelli. Logi og Solna lágu úti gegn Boras Basket og Helgi og Uppsala töpuðu gegn Södertalje Kings.
Boras 104-82 Solna
Logi lék í 25 mínútur og skoraði 7 stig, hann var einnig með 5 fráköst og 3 stoðsendingar.
 
Södertalje 82-71 Uppsala
Helgi lék í tæpar 29 mínútur í leiknum og skoraði 4 stig, hann var einnig með 8 fráköst og 3 stoðsendingar.
 
Fréttir
- Auglýsing -