7:00
{mosimage}
Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson er í sumarleyfi hér á Íslandi og á heimasíðu Njarðvíkur er sagt frá því að hann hafi mætt óvænt á æfingu hjá 8. flokki kvenna hjá félaginu. Hann aðstoðaði Bylgju Sverrisdóttur þjálfara flokksins við að liðsinna dömunum við hinar ýmsu æfingar og þrautir til að verða betri í körfu.
Stúlkurnar voru himinlifandi yfir heimsókn Loga.
Gott framtak hjá Loga.
Mynd: www.umfn.is