Logi Gunnarsson var vart lentur í Frakklandi þar sem hann mun koma til með að spila með Angers í vetur þegar hann var komin í búning og spilaði æfinga leik með liði sínu gegn Quimper. Angers sigraði með 13 stigum og var Logi okkar Gunnarsson sjóðandi heitur, setti 22 stig á 24 mínútum og bætti 4 stoðsendingum við.
"Við fjölskyldan erum náttúrulega bara að koma okkur fyrir og þetta var gaman að hefja tímann hérna í Frakklandi á þessum nótum." sagði Logi í stuttu spjalli við Karfan.is í kvöld.
Deildin hjá Angers mun hefjast þann 29. september og spila þeir þá gegn Monaco.





