Silfurhafinn úr Íslenska handbolta landsliðinu, Logi Geirsson var mættur í Toyotahöllina í gær að fylgjast með leik Keflavíkurstúlkna gegn KR. Logi var þar komin til að styðja kærustu sína, Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttir sem leikur með liði Keflavíkur. Logi átti hinsvegar í smá basli með að fylgjast með leiknum þar sem að ungviðið í Keflavíkinni var fljótt að „spotta“ kappann og kröfðu hann um eiginhandaráritun. Kappinn varð að sjálfsögð við þeirri bón.
Mynd: http://www.logi-geirsson.de