HomeFréttirLogi ekki með Njarðvík í kvöld

Logi ekki með Njarðvík í kvöld


Logi Gunnarsson mun ekki getað leikið með Njarðvíkingu í kvöld gegn KR. Þetta kom í ljós í dag en hann hefur verið að glíma við meiðsli á ökkla síðastliðnar vikur. Kappinn fór í sprautur í vikunni í von um að ná leiknum en í dag kom í ljós að ef hann myndi spila gæti það aðeins gert illt verra.

 

„Læknar ráðlögðu mér að spila ekki með í dag og því verður að hlíða. Auðvitað langar manni að spila svona toppleiki, en samt vill maður ekki spila svona leiki á annari löppinni. Það er úrslitakeppni framundan og hún skiptir núna öllu máli og því er gott að hvíla og vera orðin góður fyrir hana. Ég tel hinsvegar að liðið eigi alveg að geta gert góða hluti gegn KR. Tveir nýjir leikmenn síðan við hittum þá síðasta og vonandi verður þetta bara skemmtilegur leikur sem endar með sigri þeirra grænklæddu.“ sagði Logi í samtali við Karfan.is.

Að sjálfsögðu er þetta gríðarleg blóðtaka fyrir Njarðvíkurmenn en Logi er þeirra stigahæsti leikmaður í vetur með rúm 20 stig á leik.

Fréttir
- Auglýsing -