Stjarnan hefur samið við litháska leikmanninn Amandas Urkis um að leika með liðinu á komandi leiktíð.
Urkis er 27 ára gamall og kemur til Stjörnunnar frá lettneska liðinu BK Ventspils. Hann lék á sínum tíma í bandaríska háskólaboltanum með Kentucky Wesleyan Panthers og stundaði einnig nám við Lewis & Clark Community College. Garðbæingar bjóða Urkis velkominn til félagsins og hlakka til að sjá hann á parketinu í ÞG Verk-höllinni í vetur.




