14:47
{mosimage}
(Ramunas Siskauskas leikmaður Litháen)
Karfan heldur áfram á fullu í Peking og í dag sýndi RÚV leik Bandaríkjanna og Grikklands. Fyrirfram var búist við hörkuleik en annað kom upp á teninginn.
Stórstjörnunar í bandaríska liðinu tóku öll völd á vellinum snemma í leiknum og héldu góðum 20 stiga mun út leiktímann og sigruðu á endanum 92-69.
Stigahæstur hjá bandaríska liðinu voru Kobe Bryant og Chris Bosh með 18 stig en Theo Papaloukas var stigahæstur Grikkja með 15
Spánverjar eru í svakalegu stuði og sigruðu sinn þriðja leik í röð þegar þeir lögðu Þjóðverja, 72-59. José-Manuel Calderon var stigahæstur Spánar með 15 stig en Steffen Hamann var atkvæða mestur Þjóðverja með 15 stig og 3 stoðsendingar en Dirk Nowitzki skoraði 11 og tók 5 fráköst.
Ástralía rótburstaði Íran með 38 stigum, 106-68. Íran hefur ekki unnið leik á mótinu og er ekki líklegt til afreka. Brad Newley var í miklu stuði fyrir Ástrala en hann gerði 24 stig. Alls skoruðu 5 leikmenn 10 stig eða meira fyrir Ástralíu.
Hjá Íran skoraði Mohammadsamad Nikkaha mest allra eða 23 stig.
Líkt og Íran þá er Angola ekki líklegt til að planta sér í verðlaunasæti. Þeir hafa tapað öllum þremur leikjum sínum og í nótt var enginn undantekning þegar þeir mættu heimamönnum í Kína. Kína vann öruggan sigur 85-68 og var Yao Ming óstöðvandi undur körfu heimamanna. Hann skoraði 30 stig og tók 7 fráköst.
Hjá Angola var Joaquim Gomes stigahæstur með 17 stig.
Rússar og Litháar áttust við í hörku leik. Fyrir leikinn voru bæði lið með 4 stig í A-riðli og því toppsæti í riðlinum í húfi.
Það var jafnt á öllum tölum framan af og leiddu Rússar með einu stigi eftir fyrsta leikhluta 24-23. Litháar sigu örlítið fram úr áður en gengið var til hálfleiks en þeir leiddu með þremur stigum, 44-41.
Með góðum leik í þrjiðja leikhluta náðu Litháar að auka muninn og reyndist það Rússum erfitt að vinna upp þessi stig gegn sterkri vörn Litháa.
Litháar sigruðu með 7 stigum 86-79 og tróna á toppi A-riðils með 6 stig.
Stigahæstur hjá Litháen var Rimantas Kaukenas með 20 stig en hjá Rússum var Andrei Kirilenko með 17 stig og 6 fráköst.
Einn leikur er enn ókláraður en það er leikur Argentínu og Króatíu. Króatar geta með sigri farið á toppinn með Litháum í A-riðli. Það er hins vegar nauðsynlegt fyrir Argentínu að sigra til að komast í baráttuna um sæti í 8 liða úrslitum. Argentína er sem stendur í næst neðsta sæti A-riðils en þegar þessi orð eru skrifðu leiða Argentínumenn með 13 stigum þegar annar leikhluti er hálfnaður.
Mynd: fiba.com





