HomeBónus deildinBónus deild kvennaLíst ótrúlega vel á hvað liðið er að gera

Líst ótrúlega vel á hvað liðið er að gera

KR hefur stóreflt kvennalið sitt fyrir komandi átök í Bónus deildinni með því að tryggja sér landsliðsstjörnuna Söru Rún Hinriksdóttur frá bikarmeisturum Keflavíkur, sem eru risatíðindi og skýr yfirlýsing um metnað félagsins.

Til viðbótar við þennan hvalreka snýr Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir aftur í Vesturbæinn til að auka breiddina, auk þess sem KR-ingar hafa bundið efnilega ungstirnið Rebekku Rut Steingrímsdóttur áfram við félagið. Þessar mannabreytingar sýna svo ekki verður um villst að svart-hvítar ætla sér stóra hluti í vetur og hafa lagt firnaöflugan grunn að liði sem verður spennandi að fylgjast með.

Karfan spjallaði við Emmu Sóldísi eftir að skrifað hafði verið undir.

Fréttir
- Auglýsing -