spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaLinda Marín til liðs við Vestra

Linda Marín til liðs við Vestra

Bakvörðurinn Linda Marín Kristjánsdóttir er gengin til liðs við Vestra. Linda er fædd árið 1999 og lék með yngri flokkum félagsins er það var kennt við KFÍ.

Hún hóf meistaraflokksferilinn með KFÍ árið 2013 en þann vetur var liðið einmitt undir stjórn Péturs Más Sigurðssonar, núverandi þjálfari liðsins. Linda lék einnig með KFÍ veturinn 2014-2015 þegar meistaraflokki kvenna var síðast telft fram á Ísafirði. Síðan þá hefur hún leikið í 1. deild og Úrvalsdeild með Þór Akureyri, Stjörnunni, Hamri og nú síðast með Breiðablik.

Næsti leikur Vestra er næstkomandi laugardag kl. 12:15 þegar Grindavík kemur í heimsókn, en leikurinn verður beinni útsendingu hjá Viðburðarstofu Vestfjarða.

Fréttir
- Auglýsing -