Sem fyrr var bara nákvæmlega ekkert að gera í NBA deildinni í nótt, aðeins 13 leikir voru á dagskrá og Lin stigahæstur í sigri Knicks. Þá gerðu liðsmenn Los Angeles Lakers góða ferð til Dallas þar sem þeir lögðu ríkjandi meistara Mavericks.
New York 99-82 Atlanta Hawks
Jeremy Lin og Steve Novak gerðu báðir 17 stig í liði Knicks og Lin bætti við 9 stoðsendingum. Hjá Hawks var Jeff Teague með 18 stig og 3 stolna bolta. Þetta var fyrsti sigur Knicks með þá Carmelo Anthony og Jeremy Lin báða í byrjunarliðinu.
Dallas 91-96 LA Lakers
Pau Gasol var stigahæstur hjá Lakers með 24 stig og 9 fráköst og Andrew Bynum bætti við 19 stigum og 14 fráköstum. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki með 25 stig og 12 fráköst og Vince Carter bætti við 20 stigum og 5 fráköstum. Kobe Bryant gerði 15 stig í liði Lakers en átti ekki sinn besta dag með 7 tapaða bolta og 4 af 15 í teignum.
Önnur úrslit næturinnar:
Toronto 103-93 Detroit
Washington 107-115 Sacramento
Charlotte 88-102 Indiana
Cleveland 84-89 New Orleans
Oklahoma 119-104 Boston
New Jersey 91-108 Orlando
Chicago 110-91 Milwaukee
Houston 93-87 Philadelphia
Minnesota 100-98 Utah
Phoenix 104-106 Golden State
LA Clippers 103-95 Denver



