Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Jeremy Lin skaut sér enn hærra upp á stjörnuhimininn með sigurkörfu New York Knicks gegn Toronto Raptors. Óhætt er að segja að þessi útskriftarnemi frá hinum virta Harvard háskóla hafi komið inn með hvell í liði Knicks.
Knicks mættu Toronto Raptors á útivelli í nótt þar sem lokatölur voru 87-90 New York í vil og Lin með sigurkörfuna. Lin bauð upp á myndarlega tvennu í leiknum með 27 stig og 11 stoðsendingar. Jose Calderon gerði svo 25 stig og gaf 9 stoðsendingar í liði Raptors.
Staðan var jöfn 87-87 þegar Lin vippaði sér upp í þriggja stiga skot og 2,3 sekúndur eftir á klukkunni. Um leið og boltinn söng í netinu voru 0,5 sekúndur til leiksloka og það dugði Toronto ekki til að jafna metin og Lin-æðið eykst.
Önnur úrslit næturinnar:
Indiana 90-105 Miami
Detroit 95-99 San Antonio
Chicago 121-115 Sacramento
Memphis 93-83 Houston
Oklahoma 111-85 Utah
Denver 109-92 Phoenix
Portland 109-124 Washington
LA Lakers 86-78 Atlanta



