HomeFréttirLífsnauðsynlegur sigur færði ÍR af botninum

Lífsnauðsynlegur sigur færði ÍR af botninum

ÍR vann í kvöld lífsnauðsynlegan sigur á Keflavík í Domino´s deild karla. Fögnuður heimamanna í Hellinum var ekki síst tileinkaður sigrinum heldur einnig þeirri staðreynd að hvorki Skallagrímur né Fjölnir náðu í stig þetta kvöldið. Hún já er blóðug baráttan á botni deildarinnar! Lokatölur í Hellinum voru 78-76 fyrir ÍR þar sem erfitt lokaskot hjá Davon Usher rataði ekki niður fyrir Keflvíkinga og töpuðu þeir þar með sínum sjötta deildarleik í röð!
 
 
Matthías Orri Sigurðarson var öflugur í liði ÍR í kvöld með 17 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar en Davon Usher sem var seinn í gang í liði Keflavíkur lauk leik með 26 stig og 6 fráköst en hann gerði 14 af 19 stigum Keflavíkur í fjórða leikhluta.
 
Gestirnir úr Keflavík mættu með 2-3 svæðisvörn til leiks, líkast til að freista þess að miðherji ÍR, Trey Hampton, yrði til friðs í því varnarafbrigði. Keflvíkingar komust í 9-11 en þá tók við 10-0 kafli heimamanna sem komust í 19-11. Keflvíkingar létu ekki skilja sig eftir, þristur frá Damon og lausboltavilla á Tedda ÍR-ing gerðu það að verkum að Keflavík fékk boltann aftur eftir þristinn. Guðmundur Jónsson þakkaði þá gjöf og setti annan þrist og minnkaði muninn í 22-19. ÍR leiddi engu að síður eftir þennan fyrsta leikhluta 24-22.
 
Menn voru síður en svo feimnir við að henda þristunum á loft í kvöld og einn slíkur frá Hamid Dicko kom ÍR í 27-25. Reggie Dupree laumaði líka niður einum fyrir Keflavík og þessi fyrri hálfleikur var fátt annað en skotkeppni. Þegar líða tók á annan leikhluta gekk ÍR betur og betur að leysa svæðisvörn Keflavíkur og prjóna sér leið upp að körfunni.
 
Keflvíkingar létu þó aldrei stinga sig af og komust reyndar yfir 36-37 með þristarispu en ÍR átti lokasprett fyrri hálfleiks og leiddi 44-42 í hálfleik.
 
Davon Usher opnaði síðari hálfleik með þrist, í kvöld hafði hann hægt um sig í námunda við körfuna en setti niður 6 af 10 þristum sínum í leiknum. Keflvíkingar urðu fyrir skakkaföllum í upphafi síðari hálfleiks þegar Guðmundur Jónsson fékk sína fjórðu villu og bólaði ekker meir á honum fyrr en um miðbik fjórða leikhluta. Sóknarleikur Keflavíkur leið verulega fyrir enda hafði Guðmundur verið þeirra beittastur framan af og Keflavík afrekaði bara 12 stig í döprum þriðja leikhluta af sinni hálfu.
 
ÍR reif stemmninguna í sitt fang og Matthías Orri kom þeim í 59-54 með þrist og þannig stóðu leikar fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
 
Keflvíkingar héldu sér inni með þristum og það með 48% nýtingu! Þeim gekk síður að herja á körfu ÍR með Trey Hampton í teignum og ÍR seig framúr. Sveinbjörn Claessen setti stórt stökkskot þegar hann kom ÍR í 75-71 þegar 1.40 mín. voru til leiksloka. Sagan á það til að endurtaka sig og viti menn, Keflavíkurseiglan komst yfir 75-76 eftir þrist frá Val Orra Valssyni.
 
Í næstu sókn ÍR sagði Valur ekki farir sínar ekki sléttar því dæmd var á hann léttvigtarvilla þegar 9,6 sekúndur voru til leiksloka og Matthías Orri fékk þá tvö vítaskot sem fóru bæði niður, 77-76. Keflvíkingar tóku innkast og brunuðu upp völlinn og misstu þar boltann frá sér þegar sóknarvilla var dæmd á Davon Usher. Keflvíkingar náðu að brjóta aftur með 3,5 sekúndur til leiksloka og Matthías aftur svellkaldur á línunni kom ÍR í 78-76. Ekkert annað í stöðunni hjá gestunum en að bruna upp völlinn og það verk fékk Usher sem tók hlaupandi-þrist sem var lítt líklegur og ÍR fagnaði því sigri og sex tapleikir í röð á útivelli hjá Keflvíkingum staðreynd.
 
ÍR-Keflavík 78-76 (24-22, 20-20, 15-12, 19-22)

ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 17/10 fráköst/6 stoðsendingar, Sveinbjörn Claessen 14/6 fráköst/6 stoðsendingar/5 stolnir, Kristján Pétur Andrésson 12/5 fráköst, Trey Hampton 12/12 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 7, Ragnar Örn Bragason 7/5 fráköst, Hamid Dicko 5, Pálmi Geir Jónsson 4, Daníel Freyr Friðriksson 0, Dovydas Strasunskas 0, Sæþór Elmar Kristjánsson 0, Kristófer Fannar Stefánsson 0.
Keflavík: Davon Usher 26/6 fráköst, Guðmundur Jónsson 14, Valur Orri Valsson 11/5 stoðsendingar, Damon Johnson 9/5 fráköst, Reggie Dupree 9, Andrés Kristleifsson 5, Davíð Páll Hermannsson 2, Þröstur Leó Jóhannsson 0/5 fráköst, Hilmir Gauti Guðjónsson 0, Gunnar Einarsson 0, Eysteinn Bjarni Ævarsson 0, Tryggvi Ólafsson 0.
 
  
Staðan í Domino´s deildinni
Deildarkeppni
Nr. Lið L U T S Stig/Fen Stg í L/Fen m Heima s/t Úti s/t Stig heima s/f Stig úti s/f Síðustu 5 Síð 10 Form liðs Heima í röð Úti í röð JL
1. KR 17 16 1 32 1674/1383 98.5/81.4 9/0 7/1 101.7/81.9 94.9/80.8 4/1 9/1 +3 +9 +1 2/1
2. Tindastóll 17 13 4 26 1622/1456 95.4/85.6 9/0 4/4 97.9/78.9 92.6/93.3 3/2 7/3 +2 +9 -3 3/1
3. Stjarnan 17 10 7 20 1502/1465 88.4/86.2 8/1 2/6 92.2/82.1 84.0/90.8 3/2 6/4 +1 +8 -3 1/1
4. Njarðvík 17 10 7 20 1469/1400 86.4/82.4 6/3 4/4 87.1/81.4 85.6/83.4 4/1 6/4 -1 -1 +2 0/1
5. Þór Þ. 16 9 7 18 1504/1515 94.0/94.7 6/2 3/5 95.1/92.4 92.9/97.0 4/1 6/4 +2 +2 +1 2/2
Fréttir
- Auglýsing -