Næstkomandi þriðjudag fer fram evrópuleikur KR og Belfius Mons frá Belgíu í FIBA Europe Cup. Íslensk lið hafa leikið ansi marga evrópuleiki í gegnum tíðina en langt er síðan sá síðasti fór fram.
Síðasta lið sem lék í evrópukeppnninni var einnig KR sem lék gegn tyrkneska liðinu Banvit BC. KR tapaði báðum leikjum gegn Banvit þeim fyrri 79-96 í DHL-höllinni en útileikurinn fór 95-83 fyrir tyrkjunum.
Þetta árið drógst KR gegn Belfius Mons frá Belgíu sem endaði í 7. sæti í Belgísku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og féll úr leik gegn Antwerp í átta liða úrslitum. Liðið er skipað þremur bandarískjum leikmönnum eins og staðan er núna og ætlar sér greinilega stóra hluti í deildinni í vetur.
Liðið lék í dag æfingaleik gegn franska úrvalsdeildarliðinu Chalons Reims Basket sem Martin Hermannsson leikur með. Lið Belfius Mons vann nokkuð öruggan sigur á Martin og félögum 74-58. Martin var því miður ekki með Reims í dag en hann varð fyrir því óhappi að lenda illa á bakinu í æfingaleik í gær og var því ekki með vegna meiðsla.
Leikur Belfius Mons og KR fer fram á þriðjudaginn kl 19:00 í DHL höllinni.




