HomeFréttirLF lagði drekana og komst í 3. sæti

LF lagði drekana og komst í 3. sæti

LF Basket og Sundsvall Dragons áttust við í Íslendingaslag sænsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi þar sem LF vann sterkan 87-73 sigur í leiknum. Þrátt fyrir myndarlega tvennu hjá Hlyni Bæringssyni máttu drekarnir fara heim án stiga.
 
 
Haukur Helgi Pálsson gerði 9 stig í liði LF, tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar en stigahæstur í sigurliðinu var Christopher Ryan með 20 stig. Hlynur var stigahæstur drekanna með 21 stig, 12 fráköst og 2 varin skot. Ægir Þór og Jakob bættu báðir við 9 stigum en Jakob var einnig með 7 fráköst og 4 stolna bolta og Ægir bætti við 4 fráköstum og 2 stolnum boltum. Ragnar Nathanaelsson gerði svo 2 stig, tók 3 fráköst og varði 2 skot.
 
LF Basket er nú í 2.-5. sæti sænsku deildarinnar ásamt Sundsvall en Södertalje, LF, Uppsala og Sundsvall hafa öll 22 stig en Norrköping vermir toppsætið með 24 stig.
  
Mynd/ Haukur Helgi gerði 9 stig í sigurliði LF gegn Sundsvall í gær.
Fréttir
- Auglýsing -