07:00
{mosimage}
(Steve Leven)
Snæfell hefur fengið ástralska leikmanninn Steve Leven til liðs við sig í Iceland Express deild karla fyrir lokasprettinn sem framundan er í bæði deild og bikarkeppni. www.stykkisholmsposturinn.is greinir frá komu Leven í Hólminn.
Steve er því fjórði erlendi leikmaður Snæfells þó í raun séu aðeins tveir nú sem þiggja laun hjá félaginu því Anders Katholm kemur hingað sem dönskukennari við grunnskólann.
Af því sem hægt er að finna um Steve Leven á netinu þá er þar greinilega um góðan leikmann að ræða, sé hann í formi á annað borð. Hann lék m.a. með háskólaliði Wyoming Cowboys þar sem hann m.a. var stigahæsti leikmaður liðsins 2006 með 14,2 stig og 2,3 fráköst að meðaltali í leik eftir 13 leiki. Hann lék einnig í Þýskalandi seinnihluta tímabilsins og lék 9 leiki þar sem hann var með um 28 stig í leik.
En eins og alltaf þá er tölfræði og upplýsingar á netinu eitt frammistaða og form á vellinum þegar hingað er komið annað. Þannig að það verður spennandi að sjá hvernig leikmaðurinn Steve Leven verður og hvort hann reynist Snæfellsliðinu sá happafengur sem vonast er eftir.




