KR hefur samið við lettneska skotbakvörðinn Roberts Berzins um að leika með meistaraflokki karla í Bónusdeildinni á komandi leiktíð. Berzins er 26 ára gamall, 193 cm á hæð og kemur til KR frá Rigas Zelli sem leikur í LEBL-deildinni, sameinaðri úrvalsdeild Eistlands og Lettlands.
Á síðustu leiktíð var hann með 11,5 stig að meðaltali í leik með Rigas Zelli, en hann hefur áður leikið með stórliðinu VEF Riga, BK Liepaja og Jurmala í sömu deild.
Berzins á að baki leiki með yngri landsliðum Lettlands ásamt einum leik með A-landsliði þjóðar sinnar, en hjá KR hittir hann fyrir landa sinn Linards Jaunzems. Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, segist gríðarlega spenntur fyrir komu Berzins og telur að hann passi vel í íslenska körfuboltann. Jakob dregur fram að Berzins sé öflugur skotmaður og íþróttamaður sem geti leyst nokkrar stöður á vellinum, sem muni henta leikmannahópi KR afar vel á komandi keppnistímabili.



