spot_img
HomeFréttirLengjubikar kvk: Keflavík, Njarðvík og Haukar með sigur

Lengjubikar kvk: Keflavík, Njarðvík og Haukar með sigur

 Í kvöld voru þrír leikir í Lengjubikar kvenna. Keflavíkurstúlkur völtuðu yfir KR 90:72 þar sem Pálína Gunnlaugsdóttir skellti niður 21 stigi fyrir Keflavík og Sara Hinriksdóttir setti 20 stig ásamt því að rífa 9 fráköst en hjá KR var það Björg Einarsdóttir sem var atkvæðamest með 18 stig. 
 Í Njarðvíkinni tókur meistararnir á móti Grindavík og þar fóru þær grænklæddu með 76:54 sigur af hólmi eftir að jafnræði hafði verið með liðunum fram að hálfleik.  Lele Hardy heldur áfram þar sem frá var horfið á síðasta tímabili og skilaði línunni 19 stig, 25 fráköst, 8 stoðsendingar.  Hjá Grindavík var fyrrum leikmaður Njarðvík Petrúnella Skúladóttir með 26 stig og 8 fráköst. 
 
Það voru svo Haukastúlkur sem heimsóttu Hmarsstúlkur heim í blómabæinn og sóttu 90:57 sigur þar sem að Margrét Rósa Hálfdánardóttir skellti 20 stigum fyrir Hauka.  Stigahæst hjá Hamar var Íris Ásgeirsdóttir með 15 stig. 
 
 
Mynd: Úr leik Keflavíkur og KR í kvöld.
Fréttir
- Auglýsing -