HomeFréttirLele Hardy verður spilandi þjálfari Njarðvíkurkvenna

Lele Hardy verður spilandi þjálfari Njarðvíkurkvenna

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara meistaraflokks kvenna. Samið var við Lele Hardy um að vera spilandi þjálfara liðsins. Henni til aðstoðar verður Lárus Magnússon. Njarðvíkingar greina frá þessu í tilkynningu í dag.
Í tilkynningunni segir ennfremur:
 
Það var vitað að stórta skarð þurfti að fylla eftir að Sverri Þór Sverrisson þjálfari Njarðvíkur á nýafstöðnu tímabili, ákvað að taka að sér þjálfun karlaliðs Grindavíkur. Lele Hardy er vel kunn hjá Njarðvík en hún lék með liðinu á liðnu tímabili við góðan orðstír og var m.a valinn besti erlendi leikmaður tímabilsins ásamt því að verða Íslands- og bikarmeistari með liðinu.
 
Stjórn Körfuknattleiskdeildar UMFN bindur miklar vonir við þetta nýja þjálfarateymi. Enda bæði vel kunn innviðum félagsins.
 
Stefna félagsins er sem áður að ávallt vera í fremstu röð.

Af öðrum leikmannamálum er það að frétta að Körfuknattleiksdeildin hefur einnig samið við Salbjörgu Rögnu Sævarsdóttur, betur þekkt sem Dalla, um að leika áfram með félaginu.  Dalla stóð sig frábærlega í vetur og er mjög efnilegur miðherji sem gerði góða hluti á sínu fyrsta tímabili og var valin efnilegasti leikmaður félagsins á vordögum.   

Mynd/ Lele Hardy var ein aðalsprautan í sigursælu liði Njarðvíkinga á síðasta tímabili.
  
Fréttir
- Auglýsing -