Sigurður Ingimundarson, einn sigursælasti körfuboltaþjálfari í sögu Íslands, náði á dögunum þeim áfanga að fara holu í höggi á Hólmsvelli í Leiru. Sigurður, sem hefur leikið golf í um tuttugu ár, hafði aldrei áður verið nálægt því að ná draumahögginu.
Atvikið átti sér stað á níundu braut vallarins en Sigurður sló með sjö-járni í smá meðvindi. Hann sagðist í samtali við Kylfing hafa talið að boltinn hefði farið yfir flötina og var farinn að leita að honum fyrir aftan hana ásamt meðspilurum sínum þegar Bebba, kona Stebba félaga hans í hollinu, kallaði til þeirra að boltinn væri kominn í holuna.
Eftir draumahöggið var ákveðið að láta níu holur duga þann daginn og færa sig yfir í klúbbhúsið til að fagna afrekinu og bjóða meðspilurunum upp á drykk eins og hefðin segir til um. Sigurður sagði að þetta væri toppurinn og að hann hefði fundið meiri áhuga fyrir golfinu í sumar og spilað mikið.
Nánar er fjallað um afrekið og viðtal við Sigurð má finna á Kylfingi.



