spot_img
HomeFréttirLeikurinn gegn Svíþjóð í beinni útsendingu hér kl. 11:30

Leikurinn gegn Svíþjóð í beinni útsendingu hér kl. 11:30

 

Í dag mun undir 20 ára lið karla leika sinn annan leik í A deild Evrópumótsins í Chemnitz í Þýskalandi. Mun þetta vera í annað skiptið í sögunni sem liðið leikur í efstu deild þessa aldursflokks, en liðið komst upp fyrir tveimur árum og hélt sér uppi síðasta sumar.

 

Annar leikur Íslands er gegn Svíþjóð kl. 11:30 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér fyrir neðan.

 

Fyrsta leik mótsins tapaði liðið fyrir Serbíu í gær, líkt og Svíþjóð, sem töpuðu einnig sínum fyrsta leik á mótinu fyrir Ítalíu.

 

Með Íslandi í riðli á mótinu eru Svíþjóð, Serbía og Ítalía. Eftir leiki í honum munu liðin svo leika um sæti á mótinu, en mótið stendur til til 22. júlí næstkomandi.

 

Allir leikir liðsins munu verða í beinni útsendingu, sem og verða fréttir af þeim bæði hér á Körfunni og á síðu Körfuknattleikssambandsins. Frekari upplýsingar er að finna um mótið hér.

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -