spot_img
HomeFréttirLeikurinn gegn Grikklandi í beinni útsendingu hér kl. 13:45

Leikurinn gegn Grikklandi í beinni útsendingu hér kl. 13:45

 

Þessa dagana leikur undir 20 ára lið karla í A deild Evrópumótsins í Chemnitz í Þýskalandi. Mun þetta vera í annað skiptið í sögunni sem liðið leikur í efstu deild þessa aldursflokks, en liðið komst upp fyrir tveimur árum og hélt sér uppi síðasta sumar.

 

Í dag kl. 13:45 leika þeir við Grikkland um sæti 13-16 á mótinu. Þrjú lið falla niður í B-deild og því staðan orðin ansi strembin fyrir Íslenska liðið. Ísland þarf að sigra báða leiki sína sem eftir eru.

 

Allir leikir liðsins munu verða í beinni útsendingu, sem og verða fréttir af þeim bæði hér á Körfunni og á síðu Körfuknattleikssambandsins. Frekari upplýsingar er að finna um mótið hér.

 

Fréttir
- Auglýsing -