HomeBónus deildinBónus deild karlaLeikur ekki með Keflavík í Bónusdeildinni

Leikur ekki með Keflavík í Bónusdeildinni

Filippseyska liðið Strong Group Athletics hefur tilkynnt komu bandaríska bakvarðarins Remy Martin til félagsins.

Þetta staðfestir að hann mun ekki leika með Keflavík í Bónusdeildinni á komandi tímabili.

Martin er samkvæmt tilkynningu mættur til að styrkja hóp Strong Group-Pilipinas fyrir átökin í hinu hefðbundna William Jones Cup móti, en þar hefur liðið verið sigursælt síðustu ár.

Fréttir
- Auglýsing -