spot_img
HomeFréttirLeiktíðin að veði hjá heimamönnum í Röstinni

Leiktíðin að veði hjá heimamönnum í Röstinni

10:16
{mosimage}

 

(Ekki nóg! Grindvíkingar þurfa miklu meira frá Igor Beljanski ef þeir ætla sér í gegnum bikarmeistarana frá Stykkishólmi) 

 

Grindavík og Snæfell mætast í sínum þriðja leik í Röstinni í dag kl. 16:00 í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfuknattleik. Staðan í einvíginu er 2-0 Snæfell í vil og takist þeim að hafa sigur í dag eru þeir komnir áfram í úrslitin.

 

Fyrstu tveir leikir liðanna hafa verið nokkuð svipaðir þar sem Grindvíkingar hafa litið vel út framan af leik en þegar líða hefur tekið á leikina taka bikarmeistararnir völdin og sigla nokkuð sterklega í átt að sigri. Því verður fróðlegt að sjá í dag hvort Grindvíkingum takist að snúa sér taflinu í hag. Ekkert annað en sigur dugir Grindvíkingum í dag annars er leiktíðin á enda hjá þeim.

 

Tölfræðingurinn og blaðamaðurinn Óskar Ófeigur Jónsson hefur fundið það út að ósigur Grindavíkur í Stykkishólmi á fimmtudagskvöld var tíundi ósigur Friðriks Ragnarssonar þjálfara Grindavíkur í röð gegn Snæfellingum. Hvort hann sé kominn með meira en nóg af því að láta í minni pokann gegn Hólmurum kemur í ljós í dag.

 

Leikur 1

Grindavík 94-97 Snæfell

 

Leikur 2

Snæfell 79-71 Grindavík

 

Grindavík-Snæfell

Leikur 3 í Röstinni kl. 16:00

Mynd: Snorri Örn Arnaldsson

Fréttir
- Auglýsing -