HomeFréttirLeiktíðin á enda hjá Fain - Haukar á höttunum eftir nýjum leikmanni

Leiktíðin á enda hjá Fain – Haukar á höttunum eftir nýjum leikmanni

Hayward Fain verður ekki meira með Haukum í Iceland Express deild karla en kappinn fór hamförum í gærkvöldi þegar Haukar töpuðu í tvíframlengdum ,,thriller" gegn Grindavík. Í blálokin sótti Fain að körfunni en lenti illa og talið að hann sé brotinn á hægri fæti.
 
Búist er við að Fain verði í gipsi næstu 7-8 vikurnar. Fain gerði 39 stig, tók 12 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og stal 3 boltum fyrir Hauka í gær en kappinn hefur verið með 20,4 stig og 9,3 fráköst að meðaltali í leik hjá Haukum í tíu deildarleikjum.
 
Pétur Rúðrik Guðmundsson þjálfari Hauka staðfesti þessi tíðindi við Karfan.is í morgun og sagðist gera ráð fyrir því að Haukar myndu nú hefja leit að nýjum leikmanni til að fylla skarð Fain.
 
Í lok viðtalsins við Pétur Rúðrik í gær má sjá þegar Fain lendir illa og meiðist – sjá viðtalið við Pétur hér.(1.38mín)
 
 
Fréttir
- Auglýsing -