spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaLeiknir og Aþena gera með sér samkomulag - Senda lið í fyrstu...

Leiknir og Aþena gera með sér samkomulag – Senda lið í fyrstu deild kvenna

Aþena og Leiknir hafa gert með sér samkomulag og ákveðið að senda sameiginlegt lið til keppni í 1. deild meistaraflokks kvenna í körfuknattleik keppnistímabilið 2022-23. Þessi ákvörðun félaganna er hluti af aðgerðaráætlun sem miðar að því að byggja upp fjölbreyttara og metnaðarfyllra íþróttastarf í Efra-Breiðholti.

Vonir standa til þess hjá félaginu að liðið muni spila heimaleiki sína í íþróttahúsinu Austurbergi í ljósi þess að ÍR er í þann mund að taka við nýrri og glæsilegri aðstöðu í Neðra-Breiðholti og mun því að öllu óbreyttu kveðja Austurbergið.

Körfuknattleiksdeild Leiknis var stofnuð árið 1992 og lið félagsins í meistaraflokki karla leikur í 2. deild á yfirstandandi leiktíð. Það er því fagnaðarefni að í fyrsta skipti í langri sögu félagsins muni Leiknir senda lið til keppni í meistaraflokki kvenna.

Einstaklega fáar stelpur æfa íþróttir úr Efra-Breiðholti, en það er staðföst von og trú félagsins að með tilkomu meistaraflokks kvenna í körfubolta í Efra-Breiðholti muni það hvetja ungar stúlkur í hverfinu til íþróttaiðkunar undir samheldnu átaki Aþenu og Leiknis.

Myndin hér að ofan sýnir Stefán Pál Magnússon framkvæmdastjóra Leiknis, Brynjar Karl Sigurðsson formann körfuknattleiksdeildar Leiknis og Jóhönnu Jakobsdóttir formann Aþenu takast í hendur við undirritun þessa samstarfs.

Fréttir
- Auglýsing -