Lazar Trifunovic hinn gríðarlega sterki Serbi sem hefur leikið með Keflvíkingum hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Kappinn meiddist á ökkla nú skömmu eftir jól og hefur ekki náð sér góðum síðan. Nú hefur komið í ljós að meiðsli hans eru verri en fyrr var haldið og mun hann því halda heim á leið.
Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta þar sem enn fremur segir að stjórn og leikmaðurinn hafi komist að samkomulagi um að losa hann undan samningi. Svo sannarlega mikil blóðtaka fyrir Keflvíkinga en fastlega má búast við því að skarð Lazar verði fyllt fljótlega.




