spot_img
HomeFréttirLeikmannahópur Íslands gegn Slóvakíu

Leikmannahópur Íslands gegn Slóvakíu

Ísland tekur á morgun kl. 16:00 á móti Slóvakíu í undankeppni Evrópumótsins 2019. Leikurinn sá fyrri af tveimur, en komandi miðvikudag verður Bosnía í heimsókn í Laugardalshöllinni.

Eftir æfingu kvöldsins hefur Ívar Ásgrímsson og aðstoðarþjálfarar hans valið þá 12
leikmenn sem leika á morgun gegn Slóvakíu í undankeppni EM kvenna 2019.

Leikurinn fer fram kl. 16:00 í Laugardalshöllinni og verður í beinni útsendingu á RÚV.
Ragnheiður Benónísdóttir Stjörnunni, Sigrún Björg Ólafsdóttir Haukum og Sóllilja
Bjarnadóttir Breiðablik eru því ekki í hóp í fyrri leiknum en þjálfarateymið mun endurskoða valið fyrir seinni leikinn á miðvikudaginn kemur og leikmennirnir þrír ennþá í æfingahóp
liðsins.

Lið Íslands gegn Slóvakíu verður þannig skipað:

Leikmaður Félag S Hæð F.ár     Leikir
Berglind Gunnarsdóttir Snæfell F 177 1992 19
Birna Valgerður Benýsdóttir Keflavík M 185 2000 7
Briet Sif Hinriksdóttir Stjarnan B 174 1996 0
Embla Kristínardóttir Keflavík B 170 1995 14
Guðbjörg Sverrisdóttir Valur B 180 1992 16
Gunnhildur Gunnarsdóttir Snæfell F 176 1990 27
Hallveig Jónsdóttir Valur B 180 1995 12
Helena Sverrisdóttir Valur F 184 1988 68
Hildur Björg Kjartansdóttir Celta de VigoF 188 1994 23
Sigrún Sjöfn Ámundardóttir Skallagrímur F 181 1988 51
Unnur Tara Jónsdóttir KR F 178 1989 3
Þóra Kristín Jónsdóttir Haukar B 173 1997 8

Ragnheiður Benónísdóttir Stjörnunni, Sigrún Björg Ólafsdóttir Haukum og Sóllilja
Bjarnadóttir Breiðablik eru því ekki í hóp í fyrri leiknum en þjálfarateymið mun
endurskoða valið fyrir seinni leikinn á miðvikudaginn kemur og leikmennirnir ennþá í
æfingahóp.

Þjálfari: Ívar Ásgrímsson
Aðstoðarþjálfari: Hildur Sigurðardóttir
Leikgreining: Sævaldur Bjarnason
Styrktarþjálfarar: Arnar Sigurjónsson og Bjarki Rúnar Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir

Fréttir
- Auglýsing -